152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[16:28]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir orð hv. þingmanns sem var í ræðustól á undan mér. Varðandi ríkisreikninginn þá finnst mér tímasetningin undarleg, að leggja frumvarp til laga um staðfestingu ríkisreiknings fyrir árið 2020 fram nú í janúar, og umræðan fer fram 1. febrúar 2022, er bara allt of seint. Ég tel að þetta sé orðin sagnfræði sem er einfaldlega orðin mjög gömul varðandi allar umræður um efnahagsmál. Að sjálfsögðu þarf að gera þetta og betra er seint en aldrei, en þetta má ekki gerast aftur. Ég tel að markmið fjármálaráðherra ætti að vera að leggja þetta fram á hverju einasta vori árið eftir. Vonandi fáum við að sjá núna frumvarp til laga um staðfestingu ríkisreiknings fyrir árið 2021.

Af hverju segi ég þetta? Við getum tekið dæmi, þetta hefur komið fram í umræðunni. Fjárlög fyrir þetta ár, árið 2022, voru lögð fram án þess að staðfesting ríkisreiknings lægi fyrir fyrir árið á undan. Fyrri hluti ríkisreiknings er yfirleitt um afkomu, efnahagsreikningur, sjóðstreymi, yfirlit um breytingu eigin fjár, yfirlit um rekstur málefnasviða o.s.frv. Í seinni hluta er að finna séryfirlit og sundurliðanir, sem gefa frekari upplýsingar um ríkisfjármálin.

Það er mjög mikilvægt að glögg mynd sé af stöðu ríkissjóðs árið á undan þegar verið er að leggja fram fjárlagafrumvarp næsta árs. Það er grundvallaratriði. Það verður bara að vera þannig. Þegar frumvarp verður lagt fram fyrir næsta ár verðum við að hafa ríkisreikning staðfestan fyrir árið á undan. Það var ekki síðast. Það var ekki gert nú í desember, þá lá hann ekki fyrir, þess vegna erum við í umræðunni núna. Tímasetningin er algerlega grundvallaratriði. Þetta er samspil. Við erum með fjármálaáætlun, við erum með fjármálastefnu og ríkisreikning og svo erum við með fjárlög. Þetta þarf allt að tala saman. Ríkisreikningurinn er um staðreyndir, það eru tölulegar staðreyndir og síðan er hann áritaður af ríkisendurskoðanda. Það eru ákveðnar ábendingar sem koma fram sem búið er að fjalla um, tengdar árituninni, og ég tel óþarft að vera að fjalla nánar um það. Það kom einnig fram í framsögu formanns fjárlaganefndar að það er margt undir sem er ekki skýrt, ef ég skildi hann rétt.

Það eru atriði sem mig langar að fjalla um, t.d. varðandi innri endurskoðanda. Það er ekki innri endurskoðandi á Landspítala, og það eru allir sammála um að þar eigi að vera innri endurskoðandi, og það mun koma innri endurskoðandi. Ég tel mjög mikilvægt að það fyrirkomulag komi á allar stærstu stofnanirnar. Ég tel að það ætti að koma innri endurskoðanda á sem flestar stofnanir ríkisins sem eru í stærri kantinum. Þá þarf ekkert endilega að vera einn starfsmaður, einn innri endurskoðandi, á hverri stofnun. Það getur vel verið að hægt sé að hafa innri endurskoðanda sem þjónustar nokkrar smærri stofnanir, þjónustar kannski fimm til sex stofnanir, og þá erum við með innri endurskoðanda á mörgum stofnunum. Slíkur innri endurskoðandi gæti gefið mörgum stofnunum mjög mikilvæga ráðgjöf; um þróun á gæðaferlum og hann gæti gefið mjög miklar ábendingar til forstöðumanna stofnana til að bæta starfsemina varðandi bókhald og annað slíkt. Það getur líka verið varðandi reksturinn í heild. Ég held því að við ættum að sameinast um að það séu ekki bara Landspítalinn og allra stærstu stofnanirnar sem hafi slíka þjónustu heldur sem flestar stofnanir. Þetta er gert í sambandi við mörg önnur lög. Ég get tekið persónuverndarlög sem dæmi. Það er persónuverndarfulltrúi í öllum stórum stofnunum, en það er líka ákvæði í lögum um að persónuverndarfulltrúi geti þjónustað mörg fyrirtæki. Það eru gríðarleg samlegðaráhrif, þegar um er að ræða svipaðar stofnanir. Þetta er atriði sem ég tel vera mjög mikilvægt til að bæta rekstur ríkisins og bæta innra bókhald stofnana ríkisins.

Ég ætla aðeins að fjalla betur um þetta með tímasetninguna og það ætti að vera létt verk og löðurmannlegt að leggja fram annað frumvarp til laga um staðfestingu ríkisreiknings fyrir árið á undan, þ.e. árið 2021. Af hverju segi ég það? Vegna þess, og maður sér það í frumvarpinu, að það er verið að tala um tekjuþróun ríkisins á tímum heimsfaraldurs. Við vorum í heimsfaraldri árið 2020. Við vorum líka í heimsfaraldrinum í fyrra, árið 2021. Aðstæðurnar eru mjög svipaðar. Skattstofnar uxu líklega minna af sömu ástæðu og tekjur uxu meira af sömu ástæðu. Ég get tekið dæmi úr frumvarpinu, með leyfi forseta:

„Á móti komu auknar tekjur af tekjuskatti vegna heimildar einstaklinga til að taka út séreignarsparnað.“

Það á væntanlega líka við á síðasta ári þannig að þetta eru mjög svipuð ár, 2020 og 2021, varðandi ríkisfjárlögin. Það væri alla vega mjög fróðlegt að finna hver munurinn er, hann er að mínu mati mjög lítill. Við vorum í heimsfaraldri bæði þessi ár, þetta er hápunktur heimsfaraldursins sem við erum að fara að sigla út úr. Það er greinilegt að upphafið að endinum er byrjað og vonandi klárum við þetta fyrir sumarið.

Það er eitt atriði sem er líka mikilvægt og mig langar að koma inn á. Það er varðandi fjárfestingarnar. Út af Covid voru settir gríðarlegir fjármunir í fjárfestingar. Ísland er lítið samfélag sem er ekki með sterkt ríkisvald og það er ekki okkar sterkasta hlið að gera miklar áætlanir eða móta stefnu sem er síðan innleidd á tæknilegan hátt. En ég tel að það megi margt læra af því fjárfestingarátaki sem farið var í út af Covid. Þegar farið er í fjárfestingar þarf mikinn undirbúning. Það tekur tíma. Það að setja tugi milljarða króna í ákveðin fjárfestingarátök kemur jafnvel ekki fram í hagkerfinu fyrr en nokkrum árum seinna. Undirbúningurinn er mjög mikilvægur, það eru skipulagsmálin, það eru lög um mat á umhverfisáhrifum. Það þarf að hanna framkvæmdina, það þarf að bjóða hana út.

Svo er það annað, sérstaklega í venjulegu árferði, og það er skortur á vinnuafli. Ég held því að við verðum að taka þetta jafnt og þétt. Ef farið er í gríðarlega stórar framkvæmdir á Íslandi þarf að flytja inn vinnuafl. Við getum tekið Kárahnjúkavirkjun sem klassískt dæmi um það, það voru mjög fáir Íslendingar sem unnu að þeirri framkvæmd. Það þarf að gera fjárfestingaráætlanir, móta fjárfestingarstefnu, með tilliti til undirbúningsins. Undirbúningur er lykilatriði. Ég get tekið dæmi um framkvæmd sem búið var að tala um í nokkra áratugi og út kom skýrsla um þá framkvæmd í síðustu viku, „socioeconomic“-skýrsla, félagsleg og hagfræðileg skýrsla, um Sundabraut. Jú, jú, borgarstjóri og innviðaráðherra tókust í hendur og það var allt í fjölmiðlum. En þar er ekki búið að ákveða hvort um verði að ræða jarðgöng eða brú. Undirbúningurinn er á fullu, það á að byrja 2026 og ljúka 2031, en ekki er búið að ákveða hvort byggja eigi jarðgöng eða brú. Þetta er grundvallaratriði. Það þarf að vita í hvað peningarnir eiga að fara, í hverju á að fjárfesta. Það þarf að vita nákvæmlega hvernig mannvirkið á að vera. Allur undirbúningurinn er í mínum huga ekki byrjaður varðandi þessa framkvæmd en samt er menn búnir að ræða málin, það eru komnar skýrslur um framkvæmdina, m.a. skýrsla frá Vegagerðinni þar sem fram kemur að 14 milljarða munur sé á brú og göngum. En það er ekki búið að taka ákvarðanir. Þegar farið er í svona fjárfestingarverkefni, settur peningur í það, þarf líka að ákveða hvað eigi að gera. Það þarf að gera það af ákveðinni nákvæmni. Það þarf t.d. að ákveða hvort byggja eigi brú eða jarðgöng.

Vegagerðin þarf að hafa framtíðarsýn í samgöngumálum og Alþingi Íslendinga þarf að hafa framtíðarsýn til lengri tíma varðandi áætlanir í innviðauppbyggingu og öðru. Samgönguáætlun er góð og jarðgangaáætlun líka en það þarf líka að vera til önnur áætlun til hliðar sem er til enn lengri tíma, sem er eins konar sýn. Við getum þess vegna haft annars vegar samgönguáætlun og hins vegar sýn í samgöngumálum sem er til enn lengri tíma sem hægt er að diskútera á miklu breiðari grundvelli en tæknilega úrvinnslu um það hvort reisa eigi brú hér eða þar eða jarðgöng eða annað slíkt. Ég læt staðar numið í bili og þakka fyrir umræðuna.