152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[16:37]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Ég ætla að koma örstutt inn á það sem hv. þingmaður nefndi í lok ræðunnar, framtíðarsýnina. Langtímahorfur í efnahagsmálum eru grundvallarplagg í því hvernig við skipuleggjum ríkisfjármál og náum að sinna þeim grundvallarbreytingum sem við sjáum að verða á næstunni, t.d. til þess að geta skipulagt það hversu marga hjúkrunarfræðinga þarf og slíkt. Nú erum við með í samgöngumálum fimm ára samgönguáætlun og svo 15 ára samgönguáætlun. Eins og hv. þingmaður bendir réttilega á er þessi 15 ára samgönguáætlun í raun ekki nóg. Við þyrftum, miðað við núverandi aðstæður, að hafa fyrir framan okkur hvernig samgöngukerfið væri ef það væri einfaldlega fullkomið. Hvernig væri það ef það væri bara tilbúið og það þyrfti ekki að gera neitt nema sinna viðhaldi? Að sjálfsögðu eru síðan lýðfræðilegar breytingar, þróun mannfjölda og ýmislegt svoleiðis sem myndu hafa áhrif á myndina af því hvað fullkomið samgöngukerfi er og það koma tækninýjungar og ýmislegt sem að sjálfsögðu er unnið að jafnóðum til framtíðar. En ef við erum ekki með neitt sem segir: Svona er samgöngukerfið eins og við viljum hafa það þegar það er fullgert, þá erum við heldur ekki með nægilega gott markmið til að skipuleggja fimm eða 15 ára samgönguáætlun. Það er vandinn sem liggur hér undir. Ég komst að því á síðasta kjörtímabili, þegar ég spurði um vegtegundir á Íslandi, að til er vegtegund C7 eða C8 sem er ráðlögð á milli tveggja staða út frá umferðarmagni o.s.frv. Þannig vegur er lagður þar á milli, og er sem sagt í vegaskrá æskileg vegtegund. Þá spurði ég Vegagerðina: Hver er raunveruleg vegtegund? Svarið var: Við vitum það ekki. Vegagerðin veit ekki hvaða vegi hún hefur byggt og getur ekki sýnt okkur hvernig ástandið er núna. Það er stórskrýtið.