152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[16:40]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hvað er áætlun? Við erum með tvær áætlanir, fimm ára áætlun og 15 ára áætlun, í samgöngumálum. Áætlun er áætlun, þú ætlar að gera eitthvað, þú ætlar að ná einhverju markmiði, áætlun er leið að markmiði, í öllu. Ef þú ætlar að fara í háskóla þá gerir þú áætlun um það hvernig þú ætlar að koma þér í háskóla. Og ég er algerlega sammála hv. þingmanni, við þurfum að skýra markmiðið. Hvernig samgöngur viljum við hafa á Íslandi? Hvernig samgöngur viljum við? Það markmið er margra áratuga markmið, margra áratuga. Ég fylgdist mikið með pólitík upp úr 2000. Þá var markmið að teikna upp jarðgöng á Íslandi, og það var bara hlegið að því, það yrði unnið að tveimur jarðgöngum í einu, framkvæmdum á tveimur stöðum í einu. Í dag erum við með tíu jarðgöng. Í Noregi eru þau tæplega 1.200. Það er grundvallaratriði að hafa markmiðið skýrt, teikna það upp. Það er framtíðarsýnin. Það er hið fullkomna vegasamgöngukerfi Íslands. Það er sýn sem við höfum fyrir framan okkur og svo gerum við áætlun til að nálgast hana.

Það er annað líka sem ég tel skipta mjög miklu máli í samgöngumálum, það er að samgöngur verði notaðar til að jafna búsetuskilyrði. Það verði bara skilgreint hvað eru jöfn búsetuskilyrði. Ef ég bý úti á landi þá vil ég hafa jöfn búsetuskilyrði á við höfuðborgarsvæðið. Hvað þýðir það? Hvert er inntakið með því, hvers konar vegasamgöngur eru það? Á barnið mitt að þurfa að fara yfir þriðja heims vegi í skólann á hverjum einasta morgni, eins og maður hefur séð myndir af á samfélagsmiðlum, holur sem maður trúir nánast ekki að séu til staðar? (Forseti hringir.) Ég er algjörlega sammála þessu, það skiptir máli að hafa sýnina (Forseti hringir.) og það mætti eiga umræðu um það hér á svona stefnumótunarstofnun eins og Alþingi er.