152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[16:42]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Þetta er einmitt kjarninn í lögum um opinber fjármál sem við erum að ræða hérna, einn hluti þeirra sem er ríkisreikningurinn. Það kemur kannski einhverjum spánskt fyrir sjónir af hverju við erum að tala um langtímasýn í samgöngum í umræðum um ríkisreikning, en það er af því að við erum líka eftirlitsstofnun. Við erum með eftirlit með framkvæmd fjárlaga. Það er alla vega mín skoðun að í ríkisreikningi sé dálítið verið að skoða hvernig farið er með fjárheimildir. Ef eitthvað er þá er þetta stærsta aðgerðin sem við förum í varðandi endurskoðun á því hvernig fjárheimildir eru notaðar. Þær eru alltaf í samhengi við áætlanir. Hvernig er heildaráætlunin? Hvernig eru fjárheimildirnar fyrir næstu fimm ár, eins og er í fjármálaáætlun? Hvernig stenst það í fjárlögum og hvernig var það síðan útfært samkvæmt ríkisreikningi? Við sjáum einmitt hversu mikið af fjárheimildum í fjárfestingarverkefni voru ekki nýttar. Við sjáum það í opinberum nýsköpunarverkefnum, Tækniþróunarsjóði og Rannsóknasjóði o.s.frv., þar var ásókn miklu meiri en fjárheimildir voru fyrir. Maður veltir því fyrir sér hvort við ættum að samþykkja opnari fjárheimildir fyrir slík verkefni, eins og er t.d. með atvinnutryggingar. Ef fólk verður atvinnulaust þá fær það atvinnuleysistryggingar hvernig sem fjárheimildirnar eru. (Forseti hringir.) Ef það koma rosalega góðar umsóknir í Tækniþróunarsjóð eigum við þá ekki bara að gefa fjárheimildir fyrir þeim? (Forseti hringir.) Það eru slíkar spurningar sem við þurfum stundum að svara í þessu.