staðfesting ríkisreiknings.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Ég lít á umræðuna hjá okkur, um samgöngur og samgönguáætlanir, sem hluta af umræðu undir liðnum fjárfestingar ríkisins. Ég tel að þeir fjármunir sem voru settir í fjárfestingar út af Covid, heimsfaraldrinum, gríðarlegir fjármunir — það var góður vilji á bak við það. Það var ekkert vitlaust að gera það, alls ekki, en það kom í ljós að fjárfestingargetan var ekki fyrir hendi. Það var ekki hægt að koma peningunum í lóg. Þetta eru tvö atriði. Í fyrsta lagi varðandi fjárfestingargetuna, það þarf bara að skoða það nákvæmlega. Hvað er það sem þarf? Það þarf að hafa jafnar fjárfestingar í samgöngum með ákveðna sýn. Það þarf í öllu. Við getum ekki bara verið að grúfa okkur yfir áætlanirnar og pæla í áætlunum, við þurfum að vita hvert á að fara og hvað við viljum. Stærri sýn í samgöngumálum þarf að liggja fyrir, við þurfum að teikna hana upp á kortið svo að hún liggi fyrir og þá út frá búsetuskilyrðum og því öllu, fámenn þjóð í stóru landi og það allt. Varðandi aðra þætti þá finnst mér í fyrsta lagi mikilvægt að hafa aga í ríkisfjármálum og það þarf líka að undirbúa jarðveginn betur. Þá þarf að hafa „cost-benefits analysis“ og líka eftir á hvað kom út úr fjárfestingunum. Við þurfum að draga lærdóm af því. Ef strax er byrjað að dæla út peningum þá þurfa að vera mjög skýr markmið líka, raunveruleg sýn fyrir hendi. Varðandi það sem kom núna fyrir í ríkisfjármálum í kringum heimsfaraldurinn þá ætti að taka það saman í skýrslu af rannsóknarnefnd Alþingis, það ætti að stofna rannsóknarnefnd á vegum þingsins til að rannsaka áhrif heimsfaraldursins og viðbrögð ríkisvaldsins vegna hans. Það eru Norðmenn búnir að gera. Það eru Bretar búnir að gera. Ég tel mjög mikilvægt að slík skýrsla verði gerð á forsendum þingsins (Forseti hringir.) og það verði Alþingi Íslendinga sem skipi í nefndina líkt og eftir hrunið. Og ég er ekki að tala um það til (Forseti hringir.) að finna einhverja sökudólga heldur til að læra af því.