um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég tek undir orð þeirra tveggja sem töluðu á undan mér. Þetta er sýnu sorglegra vegna þess að það er nánast einhugur í nefndinni um þetta. Þessi krafa fer ekki eftir einhverjum pólitískum línum og það virðist sem þarna sé einhver, ráðherra eða stofnunin, að reyna að þvinga Alþingi til þess að breyta lögum um þessa afhendingu. Það má svo sem vel vera að það sé kominn tími til að endurskoða það allt saman, en það er algjörlega óháð því sem við erum að ræða hér í dag. Okkur ber að fá þessi gögn og við verðum að fá þau. Það hlýtur að vera hagsmunamál hæstv. forseta að láta ekki þennan dagskrárlið vera undirlagðan þessari sjálfsögðu kröfu dag eftir dag, viku eftir viku, án þess að bregðast við. Ég veit að það er ekki alltaf sami forsetinn í sætinu en þeir hljóta að tala saman í forsætisnefnd.