152. löggjafarþing — 32. fundur,  2. feb. 2022.

um fundarstjórn.

[15:41]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég verð að viðurkenna að mér þykir mjög miður að þessi umræða hafi komið upp ítrekað í umræðu um fundarstjórn forseta. Þetta hefur að sjálfsögðu ekkert með fundarstjórn forseta að gera. En það er alveg ljóst að við erum komin í leiðinda flækjumál í allsherjar- og menntamálanefnd vegna veitingar ríkisborgararéttar með lögum. Þar hafa svolítið blandast saman í umræðunni, bæði hér í þingsal og kannski ekki síður úti í samfélaginu, þessi tvö aðskildu mál sem eru annars vegar hvaða hug og hugmyndir við höfum um breytt fyrirkomulag. Við erum flest sammála um það í nefndinni að breyta þurfi fyrirkomulaginu og ráðuneyti og Útlendingastofnun hafa á síðustu árum verið að vinna markvisst að því með nefndinni án þess að nefndin hafi tekið einhverja ákvörðun um það. Þetta er svo tvíþætt mál að í desember bókaði nefndin frest fyrir Útlendingastofnun út janúarmánuð til að afhenda þinginu umsóknir sem borist höfðu fyrir 1. október og umsagnir um þær. Við munum og erum að sjálfsögðu að leita leiða við Útlendingastofnun að fá það fram. Flækjustigið við þetta er sá tími sem það tekur stofnunina að fara yfir þessar umsóknir og að þau hafi ákveðið að breyta verklaginu með þeim hætti (Forseti hringir.) að afgreiða umsóknir í tímaröð. Ég átta mig á því, virðulegur forseti, og afsakið, það er svolítið flókið að reyna að ræða þetta alltaf í einhverjum upphlaupum í fundarstjórn forseta. (Forseti hringir.) Undirnefnd allsherjar- og menntamálanefndar er með málið hjá sér. Þau funduðu í dag, þau munu funda aftur á morgun eða næstu daga og ég vænti þess að þetta mál (Forseti hringir.) verði leyst alveg á næstunni.