152. löggjafarþing — 32. fundur,  2. feb. 2022.

um fundarstjórn.

[15:45]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég mátti til með að koma aftur upp vegna orða hv. formanns allsherjar- og menntamálanefndar sem talaði um upphlaup hér undir fundarstjórn forseta og að þetta væri ekki réttur vettvangur fyrir það. Ég verð að segja fyrir mitt leyti að mér finnst þingmenn hafa verið frekar settlegir hérna í fundarstjórn forseta miðað við alvarleika þess máls sem hér um ræðir. Við erum að tala um ráðherra í ríkisstjórn Íslands sem er að beina fyrirmælum til undirstofnunar sinnar um að brjóta lög. Þetta varðar við ráðherraábyrgð, virðulegi forseti. Þetta er grafalvarlegt mál. Það að við komum hér upp endurtekið og óskum eftir atbeina forseta við það að forseti skikki ráðherra til að fara að lögum og til þess að hætta að brjóta gegn sinni ráðherraábyrgð finnst mér bara frekar settleg leið. Það eru til aðrar og töluvert harkalegri leiðir til að taka á ráðherrum sem brjóta lög. En hér stöndum við og óskum eftir því að þingmenn og forseti standi með stjórnskipun Íslands (Forseti hringir.) og standi með lögum um ráðherraábyrgð og virði Alþingi (Forseti hringir.) og hlutverk þess við veitingu ríkisborgararéttar.