152. löggjafarþing — 32. fundur, 2. feb. 2022.
um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Við komum hingað upp dag eftir dag til að benda á það að ráðherra er að brjóta lög. Ráðherra er að brjóta lög. Það er algjört virðingarleysi við Alþingi. Annaðhvort þarf viðkomandi hæstv. ráðherra að fara að fylgja lögum eða viðkomandi hæstv. ráðherra þarf að láta af störfum.