152. löggjafarþing — 32. fundur, 2. feb. 2022.
um fundarstjórn.
Forseti. Þetta mál leysist bara ef þingið fær öll gögnin. Það er réttur fólks að sækja um þetta til Alþingis. Og miðað við það sem formaður undirnefndarinnar var að segja, á þá Alþingi bara að hunsa það? Við fáum hérna fullt af umsögnum, nei, við ætlum bara sleppa því. — Auðvitað virkar það ekki þannig. Fólk hefur rétt á því að sækja um ríkisborgararétt til Alþingis og þá á Alþingi að afgreiða það, að sjálfsögðu með málefnalegum hætti. Og til þess þarf þessi gögn.