152. löggjafarþing — 32. fundur,  2. feb. 2022.

skattar og gjöld.

211. mál
[15:57]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér erum við að afgreiða mál sem er bein afleiðing þess að þingið var sett í allt of mikla tímapressu. Við erum hér m.a. að leiðrétta frumvarp sem þurfti að afgreiða á einum degi vegna seinagangs ríkisstjórnarinnar og við erum líka að lagfæra mistök sem urðu vegna þess að bandormurinn fyrir jól og fjárlögin höfðu allt of lítinn tíma og rými í þinginu. Við styðjum tvær af þessum leiðréttingum, að sjálfsögðu, en hins vegar erum við mótfallin annarri þeirra er varðar lækkun á gjaldi fyrir losun húsbíla. En við munum sitja hjá í málinu í heild vegna þessara vinnubragða, vegna seinagangs hjá ríkisstjórninni og mótmælum þessum vinnubrögðum, virðulegi forseti.