skattar og gjöld.
Frú forseti. Hér á að framlengja bráðabirgðaákvæði til að nota úrelta aðferð við að mæla losun koltvísýrings frá ökutækjum. Þetta ákvæði var sett inn af efnahags- og viðskiptanefnd á sínum tíma eftir beiðni frá Samtökum ferðaþjónustunnar, ekki samt þannig að hún liggi skriflega fyrir og ekki þannig að fyrir liggi hvort hin meinta verðhækkun á bílum í kjölfar nýju aðferðarinnar stafaði kannski af augljósustu ástæðunni, að þeir losuðu einfaldlega of mikið af koltvísýringi. Nú er lagt til að framlengja undanþáguna aftur á grunni óskjalfestrar beiðni frá hagsmunasamtökum. Aldrei hefur verið lagt mat á áhrif á ríkissjóð eða áhrif á umhverfið. Það er óábyrgt að leyfa að selja bíla út frá úreltum losunarmælingum á sama tíma og neyðarástand ríkir í loftslagsmálum.