152. löggjafarþing — 32. fundur,  2. feb. 2022.

skattar og gjöld.

211. mál
[16:00]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Grunnurinn á bak við þessa undanþágu liggur í svindli bílaframleiðanda. Það var þannig að mengunarstaðlarnir voru eins og þeir voru og bílaframleiðandinn, það var Volkswagen, svindlaði á prófinu með því setja örflögu í alla bíla sem greindi hvort verið væri að gera koltvísýringspróf á bílunum og lét vélina ganga öðruvísi ef þannig próf var í gangi, sem leiddi til lægri mælingar. Það er það sem við erum að greiða atkvæði um að framlengja ef fólk segir já við þessu.