152. löggjafarþing — 32. fundur,  2. feb. 2022.

stéttarfélög og vinnudeilur.

272. mál
[17:59]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Þegar Samtök atvinnulífsins tóku til varnar fyrir hönd Icelandair vitnuðu þau í gögnum sínum sérstaklega til þess að í þingsal hefði tillaga mín verið felld um að ráðið yrði aftur inn í starfsaldursröð þegar staða fyrirtækisins leyfði, þ.e. fyrirtækis sem nyti stuðnings til að segja fólki upp. Sú tillaga var felld hér í þingsal af ráðherrum þáverandi ríkisstjórnar og stjórnarliðum. Samtök atvinnulífsins eru þá að segja, með því að nota þetta í málsvörn sinni, að það hafi verið skýr skilaboð frá löggjafanum að fyrirtækin mættu ráða þessu og mættu líta fram hjá starfsaldri þegar endurráðning fór fram. Ég hefði kosið, og við í Samfylkingunni, að það væri algerlega skýrt í lögunum hver skilyrðin væru að þessu leyti. Þetta úrræði var hugsað til þess að koma í veg fyrir gjaldþrot fyrirtækja. Það var ætlað til þess að það yrði lagt í hendurnar á fyrirtækjum að þau gætu með einhverjum hætti losað sig við starfsfólk sem hafði annaðhvort verið þeim óþægilegt, kannski vegna hörku í kjarasamningum, eða of dýrt vegna starfsaldurs og reynslu sem metin er til launa í kjarasamningum.

Ber ríkið ekki ákveðna ábyrgð vegna þess að umrædd tillaga var felld sem gaf þau skýru skilaboð að í lagi væri að brjóta á starfsmönnum þeirra fyrirtækja sem fengu styrk frá ríkinu til að segja þeim upp? Það hefði verið nær að veita þeim styrk til að halda ráðningarsambandi, en það er nú önnur saga.