stéttarfélög og vinnudeilur.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir kynninguna á þessu frumvarpi. Mig langar að spyrja hann örlítið út í þá ákvörðun að flytja málið óbreytt frá síðasta þingi og taka ekki tillit til umsagna sem komu frá Lögmannafélagi Íslands og fleiri lögmönnum er varða tilnefningar Hæstaréttar í Félagsdóm. Tilefni þessa frumvarps eru auðvitað ábendingar GRECO sem er vert að gefa gaum. Þær ábendingar sem komu við vinnslu hv. velferðarnefndar á síðasta þingi lutu að því að þó að dómar Félagsdóms séu endanlegir eru ákvarðanir kæranlegar til Hæstaréttar. Það er óheppilegt ef Hæstiréttur hefur áður annast tilnefningu þriggja af fimm dómurum Félagsdóms þegar Hæstiréttur þarf svo seinna meir að taka til við vinnslu kæru sem kann að koma vegna ákvarðana Félagsdóms. Í öðru lagi er talið óheppilegt, sérstaklega ef við ætlum að horfa á sjálfstæði Félagsdóms — til þess er þessi leikur gerður, að þarna sé ákveðið sjálfstæði — að þeir dómarar í Félagsdómi sem eru tilnefndir af Hæstarétti séu tilnefndir ótímabundið en hinir tveir, sem eru tilnefndir annars vegar af SA og hins vegar af ASÍ, séu eingöngu tilnefndir til þriggja ára í senn. Þarna myndast verulegt ójafnvægi milli dómaranna í Félagsdómi, sem í frumvarpinu er í raun sagt að sé til þess fallið að tryggja ekki sjálfstæði dómaranna sem eru skipaðir til svo stutts tíma. Það væri gott að fá að heyra afstöðu ráðherrans til þessa.