152. löggjafarþing — 32. fundur,  2. feb. 2022.

stéttarfélög og vinnudeilur.

272. mál
[18:06]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Svarið við þessu er að þessar athugasemdir sem komu til þingsins komu líka, að því er mér skilst, inn í samráðsgáttina á sínum tíma og nefndin sem var með það verkefni að gera frumvarp til breytinga á lögunum komst að þeirri niðurstöðu að taka ekki tillit til þeirra. Þrátt fyrir það var hún kölluð aftur saman nú í september eftir að þingið hafði haft málið til umfjöllunar til að fara aftur yfir þetta, því að sennilega hafa svipaðar athugasemdir komið til þingsins. Niðurstaðan varð aftur sú að gera ekki breytingar á þessu. Það er ekki hægt að áfrýja efnislegum dómum Félagsdóms til Hæstaréttar en það eru ákveðin atriði sem þó er hægt að vísa til hans, eins og ég veit að hv. þingmaður þekkir vel. Það er talið að það að Hæstiréttur skipi þarna dómara, sem eru annaðhvort starfandi héraðsdómarar eða landsréttardómarar, sé til þess að auka vægi dómsins, styrkja stöðu hans og hann sé, ef ég má leyfa mér að orða það þannig, meiri dómur vegna þess að þarna eru þá komnir dómarar sem eru með hæfi héraðsdómara eða landsréttardómara.

Þingmaðurinn kemur hins vegar inn á það hvort ekki sé ósamræmi í því að skipun á því fólki sem Hæstiréttur tilnefnir sé ótímabundin en hún sé tímabundin þegar kemur að Samtökum aðila vinnumarkaðarins. Ég skil alveg þá spurningu þingmannsins og hef sjálfur spurt mig að því og skal reyna að koma betur inn á þetta í seinna svari.