152. löggjafarþing — 32. fundur,  2. feb. 2022.

stéttarfélög og vinnudeilur.

272. mál
[18:08]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Nú er þessi nefnd sem semur frumvarpið skipuð fulltrúum frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, BSRB, Kennarasambandinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, félagsmálaráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti. Ég velti því fyrir mér hvers vegna ekki var talin ástæða til þess að kalla til fulltrúa t.d. Lögmannafélagsins eða mögulega Dómarafélags Íslands til þess að fjalla um þessar skýru ábendingar varðandi hæfi dómara, þrígreiningu o.s.frv. Tilefni þess að verið er að fara í þessa vinnu er einmitt að koma í veg fyrir einhvers konar spillingu hvað varðar þingmenn, dómara, saksóknara og fleira, sem er auðvitað hlutverk GRECO. Maður veltir fyrir sér: Hvers vegna er farin sú leið að búa til þetta ójafnvægi, að hlusta ekkert á varnaðarorð þeirra sem best þekkja til? Svo má líka velta fyrir sér hvort ekki hefði verið ráðlegt að eiga möguleika á því að skipa til starfans löglærða einstaklinga sem eru sérfræðingar í vinnurétti, af því að þetta fjallar nú allt um vinnurétt sem fer fram þarna, í staðinn fyrir embættisdómara sem hafa mögulega breiðari reynslu á öðrum sviðum en eru kannski ekki sérfræðingar í vinnurétti. Maður veltir fyrir sér: Ef tiltekinn einstaklingur, tiltekinn sérfræðingur, (Forseti hringir.) uppfyllir öll skilyrði til að verða dómari, er það þá ekki nóg?