152. löggjafarþing — 32. fundur, 2. feb. 2022.
skaðabótalög.
233. mál
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir þessa góðu skýringu á því hvernig við stöndum að gjafsóknarmálum í þessum djúpu réttindamálum, eins og hv. þingmaður benti réttilega á. Þetta er sanngirnismál, ég tek heils hugar undir það. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að hafa komið upp og skýrt þetta frekar.