152. löggjafarþing — 32. fundur,  2. feb. 2022.

stjórn fiskveiða.

251. mál
[19:34]
Horfa

Flm. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Þetta er svo mikið grunnatriði af því að í öllum atvinnugreinum þarf aðgengi nýliða að vera tryggt. Í þessum bransa er það tvímælalaust þetta kerfi. Þarna er hægt að byrja með lítinn kostnað, litla útgerð og vinna upp kannski með einhverjum fleirum í skrefum, en hitt kerfið sem er kannski verið að vinna sig upp í er gríðarlega lokað, í raun múrað hjá mjög fáum útgerðum sem fara umfram lögbundnar aflaheimildir og ýmislegt svoleiðis og við sjáum hvernig samþjöppunin hefur haft áhrif á byggðarlög í kringum landið. Það að færa kvóta á milli bæjarfélaga hefur haft rosaleg áhrif. Það er einfaldlega pólitísk ákvörðun að hafa það þannig. Það er ekkert flóknara en það. Þetta eru afleiðingar af ákvörðunum sem hafa verið teknar í þessum sal og af því að þessu hefur ekki verið breytt þá hljóta það að vera afleiðingar sem stjórnvöld vilja, ég sé enga aðra möguleika í því, einfaldlega vilja að þetta gerist. Fara þau í hina ýmsu bæi og segja að þau vilji að kvótinn fari þaðan og að fólkið þar verði bara að redda sér einhvern veginn öðruvísi? Nei, þau segja það ekki upphátt. En það gerist samt og það er ekki brugðist við til að laga það. Þetta myndi a.m.k. gefa fólki tækifæri til að starfa á óháðan hátt í þessum bransa, óháð áhrifum úr þessum sal.