verkefni Landspítalans.
Virðulegi forseti. Nýr forstjóri Landspítalans sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í gærkvöldi að það væri ekki sjálfgefið að spítalinn myndi sinna öllum þeim verkefnum sem hann sinnir í dag og það er reyndar í samræmi við orð landlæknis í viðtali á síðasta ári. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hefur hann hugleitt þessi orð nýs forstjóra Landspítalans? Verða verkefnin sem hann ræddi um flutt annað eða lögð niður? Og hvaða verkefni eru þetta? Erum við t.d. farin að sjá fram á það að forvarnastarf vegna skimana fyrir krabbameini, sem á ekkert endilega heima á hátækni- og háskólasjúkrahúsi, að þeirri ákvörðun forvera hans í starfi verði snúið við? Og ég spyr auðvitað: Hvað með liðskiptaaðgerðirnar? Við vitum hver staðan hefur verið síðustu fjögur ár. Að okkar mati virðist mikil kreddufesta þegar kemur að stjórnun heilbrigðismála. Það átti að setja allt, bókstaflega allt, undir ríkisvaldið. Vinstri græn fengu að ráða þessu en alltaf með dyggum stuðningi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Við skulum ekki gleyma því að ráðherra situr í skjóli þingmeirihluta. Þessar ákvarðanir í heilbrigðismálum sem samstarfsflokkarnir í ríkisstjórn hafa stutt hafa því fyrst og fremst verið pólitískar.
Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Mun hann t.d. beita sér fyrir því að skimanir á krabbameinunum fari til baka og öðrum en Landspítalanum verði falið verkefnið? Mun hann beita sér líka fyrir öðru ferli hjá Sjúkratryggingum svo að þær geti samið við sjálfstætt starfandi heilbrigðisþjónustuaðila eða stofnanir á landsbyggðunum? Við fylgjumst núna með nýlegum dómi um liðskiptaaðgerðir. Sjúkratryggingar mega ekki endurgreiða konu 1.200 þús. kr. þjónustu sem hún fékk í Klíníkinni. En vesgú, það má borga þetta ef það fer á einkaklíník í útlöndum. Hvers konar della er þetta? Þetta er pólitísk ákvörðun fyrst og fremst. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra: Mun hann beita sér fyrir breytingum í þessum efnum? Mun hann taka orð (Forseti hringir.) nýs forstjóra Landspítalans, henda þau á lofti og breyta þessu kerfi sem hefur verið byggt upp núna (Forseti hringir.) síðustu fjögur ár?