152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnaaðgerðir.

[10:48]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni Bergþóri Ólasyni fyrir þessa fyrirspurn. Fyrst vil ég nú segja að það er kannski ekki lausn í málinu að beita sterkum lýsingarorðum. Ég átta mig á því að það er mitt hlutverk að meta stöðuna jöfnum höndum. Sóttvarnalögin gera þá kröfu til mín að gera heildstætt mat jafnt og þétt og hverju sinni. Við erum í þeirri stöðu núna út frá áhættumati sérfræðinga okkar, sem hafa staðið sig afar vel, varðandi afbrigðið sem við þekkjum að smitast auðveldar, getum við sagt, að útbreiðsla smita er meiri, en sem betur fer er um veikara afbrigði að ræða þannig að það er minna um alvarleg veikindi. Við getum svo sannarlega verið bjartsýn, þróunin er þannig þessa dagana.

Það eru núna sex dagar liðnir frá því að ný reglugerð tók gildi og út frá þessu heildstæða mati tökum við þetta í skrefum og vindum ofan af þessu kefli takmarkana á líf okkar. Eins og hv. þingmaður benti réttilega á þá afléttum við síðast í gær takmörkunum varðandi sitjandi viðburði. Og svo er í skoðun núna, í þessum töluðu orðum, í samvinnu við Covid-göngudeild — álagið hefur aukist þar — ákvörðun, sem ég bind vonir við að við náum fram í dag, um að stytta einangrun úr sjö dögum í fimm, vegna þess að í áhættumatinu er það einkum tvennt; það er þessi hraða útbreiðsla smita og veikindi. Af því að hv. þingmaður kom inn á atvinnulífið þá eru mikil veikindi víða þannig að starfsemi, ekki bara í heilbrigðisþjónustu, hefur raskast og það sem við þurfum fyrst og fremst að passa núna er að þetta verði ekki of hröð útbreiðsla þannig að við ráðum við stöðuna víða, í fjölmörgum innviðum.