152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnaaðgerðir.

[10:52]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu sem snýr að sóttvarnalögum og mögulega að þeim frumvörpum sem hafa verið lögð fram af þingmönnum. Þingmenn hafa auðvitað, eins og hv. þingmaður veit, alla heimild til að leggja bara fram þau frumvörp sem þeir vilja. Ég átta mig ekki alveg á — hv. þingmaður getur kannski formað spurninguna skýrar. Staðreyndin er sú að það hafa verið birt til umsagnar drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til nýrra heildarlaga. Sú vinna hefur verið í gangi. Það frumvarp er samið af starfshópi sem var farinn í gang áður en ég settist í embætti og er núna komið í hefðbundið samráðsferli. Það er ýmislegt þar sem kallast á við þessi frumvörp sem hv. þingmaður vísar til. En mér sýnist nú að það sé fjölmargt í þessum nýju frumvarpsdrögum sem sé bara verulega til bóta í þessu sóttvarnalagaumhverfi öllu.