152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sala raforku til þrautavara.

[10:53]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Frú forseti. Síðan reglugerðarákvæði um söluaðila raforku til þrautavara var sett árið 2019 hafa tugþúsundir heimila og fyrirtækja verið flutt yfir í viðskipti til eins fyrirtækis á samkeppnismarkaði sjálfkrafa og án þess að hafa neitt um það að segja. Eins og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum voru þessir neytendur látnir greiða allt að 75% hærra rafmagnsverð heldur en almennir viðskiptavinir og rukkaðir þannig um langhæsta rafmagnsverð á Íslandi. Þannig hefur verið okrað á heimilum og fyrirtækjum í skjóli regluverks sem stjórnvöld bjuggu til.

Ég vænti þess að hæstv. orkumálaráðherra hafi fylgst vel með þessu máli. Spurning mín til ráðherra er ekki flókin, hún er þessi: Er það í samræmi við hugmyndir hans um jafnræði í atvinnulífinu og virka samkeppni þegar stjórnvöld flytja þúsundir viðskiptavina til eins fyrirtækis á samkeppnismarkaði og veita þannig einu fyrirtæki forgjöf umfram aðra aðila á markaði? Telur hæstv. ráðherra forsvaranlegt að þetta sé gert án þess að kveðið sé með neinum hætti á um ábyrgð og skyldur fyrirtækisins gagnvart neytendum?