152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sala raforku til þrautavara.

[10:58]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég og hv. þingmaður erum í sömu stöðu þegar við förum upp í þessa mikilvægu umræðu, þ.e. að tíminn er stuttur, það liggur fyrir. Málið er hins vegar stórt og í mínum huga er bara málið svona. Þetta er mál sem við hefðum kannski þurft að hafa augun meira á, og þá er ég bara að vísa almennt í þingið. Ég hef svo sem ekki gert neinn samanburð á því en mér sýnist eins og við séum búin að ræða meira núna þennan mikilvæga málaflokk á síðustu tveimur vikum en við höfum gert í mjög langan tíma. Ég ætla ekki að fullyrða hversu langur tími það er. Og sem betur fer bíða mín hér í þinginu sérstakrar umræður sérstaklega um raforkumálin. Ég ætla ekki hér á mínútu að úttala mig um flókin mál að öðru leyti en því að markmiðið er alveg skýrt. Markmiðið er að sjá til þess að íslensk heimili og íslensk fyrirtæki, sérstaklega smærri fyrirtæki, hafi aðgang að góðri umhverfisvænni orku. Það er það sem við erum að vinna að og hv. þingmaður vísaði hér til. Hann vakti athygli á einum þætti en það er af mörgu öðru að taka.