áhrif takmarkana vegna Covid-19 á börn.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að taka þetta mál hér upp í þingsal. Það er gríðarlega mikilvægt að málin séu skoðuð út frá þessu sjónarhorni, og ekki bara í gegnum faraldurinn heldur líka þegar faraldrinum lýkur, sem verður vonandi senn. Það er alveg rétt að miklar takmarkanir hafa verið í íslensku samfélagi allt frá því að veiran skaut sér niður hér á landi. Ýmsum sóttvarnaaðgerðum hefur verið beitt, eins og þingmaðurinn rakti og okkur er öll kunnugt um sem erum hér í þessum sal. Það hefur ávallt verið gert með öryggi og velferð nemenda, kennara og annarra að leiðarljósi. Ég held að það hafi allir verið sammála um það þegar faraldurinn stóð sem hæst hér að það hefði verið mjög óábyrgt að grípa ekki til þeirra sóttvarnaráðstafana sem gert var í íslensku samfélagi. En það hefur líka allt verið gert sem hægt hefur verið til þess að draga úr áhrifum á börn og aðra hópa. Leitast hefur verið við að gæta meðalhófs, af því að þingmaðurinn spyr að því sérstaklega. En það hefur líka verið gripið til fjölþættra aðgerða til að tryggja stöðu viðkvæmra hópa barna og við höfum jafnframt verið í miklu og þéttu samráði við alla þá aðila sem hafa með einum eða öðrum hætti snertingu við börn í íslensku samfélagi og vakta þetta reglulega. Upp úr því hafa fæðst ýmsar aðgerðir, líka breytingar á sóttvarnaráðstöfunum og öðru slíku.
Eins og ég sagði áðan hafa verið samráðshópar og vöktunarteymi starfandi á sviði menntamála, tómstundamála, velferðarmála, allt í gegnum faraldurinn. Jafnframt hefur Velferðarvaktin, sem starfrækt er með fulltrúum allra þeirra sem koma að velferð í íslensku samfélagi, komið með mjög reglubundnum hætti að þessum málum.
Af því að þingmaðurinn spyr líka sérstaklega að því hvort farið hafi fram sérstakt mat á áhrifum skimana á börn, þá er það ekki svo. En það er hins vegar mikilvægt að allar víddir áhrifa Covid-19 á íslenskt samfélag, ekki bara yfir þennan tíma núna, verði skoðaðar áfram, rannsakaðar og metnar og til þess nýttar og fundnar fjölbreyttar leiðir til að tryggja velferð barna til frambúðar.
Það er alveg rétt að það er óhætt að segja að heilt yfir hafi áhrifin á börn í kórónuveirufaraldrinum verið bæði lengri og meiri en nokkurn óraði fyrir. Það var talið mikilvægt að halda leik- og grunnskólum opnum til að tryggja nám og virkni barna og það hefur að langmestu leyti gengið eftir frá upphafi faraldursins. Við höfum náð að halda skólum meira opnum en mörg lönd sem við berum okkur saman við. En starfsemi skólanna hefur verið skert, mismikið á hverjum tíma. Framhaldsskólarnir voru lokaðir um tíma og fór þá allt nám fram með fjarkennslu. Frístundaheimili, þar sem skipulagt starf er í boði fyrir yngstu börn í grunnskóla, voru flest opin, en hins vegar urðu áhrif faraldursins talsverð á starfsemi til að mynda félagsmiðstöðva.
Við skulum ekki gera lítið úr þessu. Það eru mjög margar greiningar og skýrslur og vinna og vöktun sem farið hefur fram allt frá upphafi faraldursins sem ólíkir aðilar hafa unnið. Farið hefur fram mikil upplýsingaöflun á vegum menntamálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Gerð hefur verið könnun á námi og líðan framhaldsskólanema. Gerðar hafa verið ýmsar kannanir, m.a. varðandi áhrif Covid-19 og reynslu stjórnenda félagsmiðstöðva og frístundaheimila. Gerðar hafa verið kannanir á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, könnun í tónlistarskólum, aðsókn í tónlistarnám á tímum faraldurs, könnun varðandi menntakerfi og heimili á tímum Covid-19 og sýn barna á kórónuveiruna og áhrif hennar. Svona mætti áfram telja. Allt hefur þetta færst upp úr þeirri vinnu sem við höfum verið að vinna samhliða því sem við höfum verið að takast á við veiruna dag frá degi.
En það er mikilvægt á þessum tíma þegar sér fyrir endann á sóttvarnaráðstöfunum að við gleymum ekki þessum mikilvæga þjóðfélagshópi sem eru börnin og horfum til þess til hvaða aðgerða þarf að grípa. Þetta var heimsfaraldur. Þetta eru náttúruhamfarir sem hafa gengið yfir fyrir yngstu kynslóðir landsins og í því sambandi þurfum við að skoða: Hvernig sjáum við endurreisnina fyrir okkur? Hvernig ætlum við að bæta upp þennan tíma í lífi barna, bæði varðandi velferð og félagslega stöðu, sem þingmaðurinn kom að, líka varðandi námsárangur? Við höfum þegar hafið samtal um það við helstu hagsmunaaðila hvernig við sjáum slíka endurreisnaráætlun fyrir okkur. Það er hluti af því að fara út úr hamfaraástandi eins og þessu og á að vinnast með almannavörnum og öðrum aðilum. Ég vænti góðs samstarfs bæði við hv. þingmann og Alþingi Íslendinga í þeirri vinnu.