152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

áhrif takmarkana vegna Covid-19 á börn.

[11:20]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur og ráðherra fyrir þessa umræðu. Ég spyr mig hvaða áhrif þetta hefur á börn. Ég fer aftur í tímann á milli jóla og nýárs þegar ég fékk þessa kórónuveiru og lenti í því að fara í biðröð inn á Suðurlandsbraut í frosti og norðangjólu. Klukkutíma bið. Ég rakst þar á einstakling sem hafði beðið þar í einn og hálfan, tvo tíma. Fyrir framan mig voru börn, fyrir aftan mig voru börn, veik börn, grenjandi börn, börn sem foreldrar voru að reyna að halda á. Hvar var velferðarvaktin sem ráðherra talaði um? Þegar tíu mínútur, korter voru eftir þar til ég kæmist inn í hlýjuna þá kom aðili og bauð mér að fara fram fyrir röðina. Ég spurði af hverju hann væri að bjóða mér strax, af hverju hann tæki ekki börnin. Þá fór hann að smala börnunum og börnin fengu að fara fram fyrir. Ég spurði mig: Af hverju var ekki séraðgangur fyrir börnin? Ég fór að spyrja mig að því vegna þess að ég komst svo að því í næstu sýnatöku að ég gat farið inn í Fossvog í bíl, gat setið í heitum bílnum og meira að segja beðið í aðeins styttri tíma en þennan klukkutíma og fengið sýnatöku gegnum gluggann í bílnum. Hvers vegna í ósköpunum er börnum ekki boðið upp á þetta? Hvar er velferðarvaktin? Og ég spyr: Var þetta búið að vera svona í tvö ár? Þurftu fötluð börn að standa eða reyna jafnvel að vera í hjólastól í biðröð til að komast í sýnatöku? Hvers vegna í ósköpunum var ekki búið að koma á séraðstöðu fyrir þessi börn? Hvar var velferðarvaktin?