152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

áhrif takmarkana vegna Covid-19 á börn.

[11:23]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessu máli og hæstv. ráðherra fyrir þátttöku í þessu samtali, sem er afar mikilvægt. En okkur hættir til, og kannski eðli málsins samkvæmt, því að okkur þykir öllum alveg einstaklega vænt um þau sem landið munu erfa og framtíðina sem er í börnunum, að horfa í það sem betur má fara og það eigum við sannarlega að gera og vakta og fylgjast með því. En mig langar hins vegar að koma bara stuttlega inn á það að það er náttúrlega aðdáunarvert, og ég held að við öll í þessum sal getum sameinast um það, að fylgjast með viðbragði starfsfólks skólanna á öllum stigum; tónlistarskólanna, í félagsstarfinu, í íþróttunum, hvernig þau bregðast við þessum algerlega fordæmalausu aðstæðum. Við erum þakklát heilbrigðisstarfsfólkinu en við erum ekki síður þakklát skólakerfinu öllu og þessu ótrúlega viðbragði sem hefur verið sýnt í þágu barna, sem skiptir máli. Við megum ekki missa augun af boltanum þegar kemur að þeim atriðum sem betur mega fara og reyna að byrgja brunninn áður en illa fer. En ég held að það væri líka áhugavert að skoða það að það eru líka ýmis teikn um að sumir hlutir hafi skilað okkur áfram þrátt fyrir aðstæður. Það er aukið tæknilæsi, það er aukin samvera — sem hefur líka neikvæðar afleiðingar, við vitum það og við þurfum að kortleggja það betur. En það er aukið tæknilæsi, aukin samvera, hægari snúningur samfélagsins, ég ítreka það, og samtal á milli einstaklinga. Við megum horfa til þeirra þó jákvæðu þátta sem við áttum kannski ekkert endilega von á að kæmu út úr þessu ástandi öllu saman en skiptir líka máli að kortleggja og læra af því.