áhrif takmarkana vegna Covid-19 á börn.
Forseti. Geðheilsu ungs fólks í Evrópu hefur hrakað mikið vegna samfélagslegra takmarkana í faraldrinum. Það er áætlað að um tveir þriðju ungs fólks sé í hættu á að verða þunglyndir. Þessar niðurstöður ríma við reynslu okkar hér á landi af hruninu en meginmunurinn virðist vera að áhrifin af viðbrögðum stjórnvalda í faraldrinum núna leggjast sérstaklega þungt á unga fólkið okkar. Heil kynslóð menntaskólanema hefur misst af tveimur árum af mikilvægum tíma til að efla félagshæfni og tengslamyndun. Þetta á líka við um háskólanema, tvö ár sem þau fá aldrei til baka. Að búa yfir góðri félagshæfni sem barn og unglingur getur haft gríðarleg áhrif á heilbrigðan þroska, andlegan og líkamlegan. Félagsfærni er mikilvæg til þess að einstaklingur geti byggt upp tengsl við aðra. Við vitum að heilbrigð tengslamyndun styður við bætta geðheilsu. Hún dregur úr áhættuhegðun og fíknisjúkdómum. Samkvæmt Salvöru Nordal, umboðsmanni barna, hefur líðan grunnskólabarna hér á landi farið versnandi eftir því sem liðið hefur á faraldurinn. Tilkynningar til barnaverndar hafa aukist og alvarlegar fyrirspurnir til hjálparsíma Rauða krossins eru mun fleiri en þær hafa verið. Börn og ungmenni tala sjálf um skort á aðgengi að sálfræðingum og annarri bráðnauðsynlegri þjónustu.
Forseti. Við verðum að bregðast við. Við verðum að stórefla nauðsynlega þjónustu til að koma til móts við þarfir barna og ungs fólks. Ríkisstjórn sem skerðir lífsgæði heillar kynslóðar ber lagaleg og siðferðisleg skylda til að fara í stórar aðgerðir strax til að draga úr skaðanum sem aðgerðir hennar hafa valdið ungu fólki. Þá kemst hæstv. barnamálaráðherra ekki upp með að tala um að áhrif Covid-19 þurfi að skoða og rannsaka og að við þurfum að bregðast við og allt þetta. Hvernig verða rannsóknir fjármagnaðar? Hvar er aðgerðaáætlunin? Hvað ætlar ráðherra og ríkisstjórnin að gera? Ekki koma bara með einhverja viljayfirlýsingu, (Forseti hringir.) það þarf aðgerðir strax. Þetta er eitthvað sem hefði átt að byrja í ferli fyrir löngu síðan. (Forseti hringir.) Við verðum að fá mótvægisaðgerðir og ég vil fá svör frá barnamálaráðherra (Forseti hringir.) um það hvað hann ætli að gera, ekki bara hvað hann vill gera.