áhrif takmarkana vegna Covid-19 á börn.
Frú forseti. Tvö ár eru langur tími í lífi barna og ungmenna, tími sem hefur mótandi áhrif á velferð þeirra og framtíð, mótandi áhrif á færni og getu til að takast á við áskoranir framtíðar. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur, og hæstv. ráðherra fyrir að mæta til samtalsins. Það má til sanns vegar færa að áskoranir voru fordæmalausar í upphafi Covid-tímans og tíminn á eftir að leiða í ljós afleiðingar sóttvarnaaðgerða á efnahagslífið og atvinnulífið. Tíminn mun líka þurfa að leiða í ljós áhrif mótvægisaðgerða þar. En staðan er önnur og flóknari þegar kemur að börnum og ungmennum þessa lands. Við þekkjum hvaða áhrif félagsleg einangrun hefur á börn og unglinga á mótunarárum, vitum að nám þeirra í gegnum tölvu getur aldrei náð sömu markmiðum og annað nám eins og við höfum þekkt það. Við vitum að leikir barna og félags- og skemmtanalíf ungmenna gegnir mun stærra hlutverki í þroska fólks en áður var talið. Enn er eftir að sjá hvaða áhrif þessi staða hefur haft á námsframvindu, námsárangur og jafnvel á brottfall ungmenna frá námi. Við þurfum gögn og við þurfum aðgerðir til að bregðast við. Mun þetta t.d. hafa áhrif á hlutfall ungmenna sem halda áfram námi að loknum framhaldsskóla? Mun þetta hafa áhrif á hvernig þau mæta þar til leiks? Hvað gerum við til að bregðast við? Síðast en ekki síst þekkjum við hin skelfilegu áhrif heimilisofbeldis, þegar heimilið er ekki sá griðastaður sem það á að vera. Þar vitum við að einangrun vegna sóttvarnaaðgerða gerði illt verra hjá allt of mörgum. Allt þetta vitum við. Spurningin er: Hvernig ætlum við að bregðast við? Það eru svörin sem ég kalla eftir frá mennta- og barnamálaráðherra og öðrum ráðherrum sem á einn eða annan hátt hafa þessa málaflokka undir sínum nýju ráðuneytum. Það sem má allra síst gerast er að einhver þessara atriða, einhver þessara brýnu úrlausnarefna, falli milli skips og bryggju í Stjórnarráðskraðakinu. (Forseti hringir.) Sá kapall má ekki hafa áhrif á hversu vel og fljótt við náum að ráða við þetta verkefni. (Forseti hringir.) Og vanti fjármagn þá vitum við alla vega hvar það liggur.