152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

áhrif takmarkana vegna Covid-19 á börn.

[11:29]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu sem hér á sér stað. Það hefur blasað við öllum lengi að þeir hópar sem fara kannski verst út úr sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda eru þeir sem minnst hætta stafar af þeirri veiru sem hér hefur geisað. Það er búið að vera hreinlega sorglegt að fylgjast með því hversu auðvelt það virðist hafa verið stjórnvöldum að leggja á takmarkanir sem gerðu börnum og ungmennum lífið mun mótdrægara heldur en þörf var á. Við horfum á það núna að unglingar eru að útskrifast með stúdentspróf án þess að hafa nokkurn tímann fengið heilan vetur af eðlilegu skólastarfi, eðlilegu félagslífi með öllu því sem þar á sér stað. En ég verð eiginlega koma inn á og bæta við spurningu út frá því sem hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir kom inn á í ræðu sinni þar sem hún sagði, með leyfi forseta:

„… tilkynningum til barnaverndaryfirvalda um ofbeldi og vanrækslu á börnum fjölgaði mikið. Sú hræðilega staðreynd liggur fyrir að tilkynningum um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum fjölgaði um heil 40% frá árinu 2020 til ársins 2021.“

Nú kemur hæstv. ráðherra upp aftur í lok þessarar umræðu og hann verður eiginlega að upplýsa þingheim um það með hvaða hætti hefur verið brugðist við akkúrat þessum upplýsingum sem hér koma fram því þetta er auðvitað sláandi. Hæstv. ráðherra taldi hér upp hinar ýmsu kannanir sem hafa verið gerðar af hinum ýmsu stofnunum og fyrirtækjum en það var ekki alveg jafn ljóst hvaða viðbrögð höfðu orðið vegna þeirra úttekta. En varðandi þetta atriði, 40% aukning í fjölgun tilkynninga um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum, vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvað hafi verið gert varðandi akkúrat það.