152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

áhrif takmarkana vegna Covid-19 á börn.

[11:32]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að opna á þessa umræðu hér í dag. Hún er vissulega þörf í samfélaginu og á þessum tímapunkti líka. Stjórnvöld tóku snemma í þessum faraldri ákvörðun um að reyna eftir fremsta megni að hlífa börnum við hamlandi samfélagstakmörkunum, en eðli málsins samkvæmt gekk það ekki alltaf vel. Börnum var t.d. illa hlíft við síendurteknum sýnatökum, sem teljast verður íþyngjandi inngrip í líf barna, og voru mörg börn skikkuð í sóttkví jafnvel vikum saman í einangrun frá vinum, fjölskyldu og eðlilegu lífi.

Það eru einmitt einna helst afleiddar afleiðingar sóttvarnaaðgerða sem áhyggjur mínar lúta að. Það hringir öllum viðvörunarbjöllum, eins og kom fram í ræðunni hér áðan, að fjöldi tilkynninga um brot gegn börnum, bara brot, á Covid-árunum hafi fjölgað um tæp 17%, og rúmlega 50% fjölgun hafi orðið á tilkynningum um kynferðisofbeldi gegn börnum á tveimur árum. Þessi staða, frú forseti, er algjörlega óboðleg, þessu þarf að bregðast við. Ég kalla eftir því að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra bregðist við þessu. Vísindamenn um allan heim rannsaka nú áhrif sóttvarnaaðgerða á þroska ungbarna en margir hafa áhyggjur af einangrun frá öðrum meðlimum stórfjölskyldunnar, öðrum ungbörnum og að álag á foreldra vegna faraldursins geti haft áhrif á félagslegan þroska ungbarna, jafnvel hreyfi- og taugaþroska. Það verður því áhugavert að sjá hverjar niðurstöðurnar verða og þá hvernig hægt verður að bregðast við þessu. Ég tel það frumskyldu okkar hérna að hlúa vel að börnunum okkar og halda utan um ungmennin. Við verðum að horfa til þess á leiðinni út úr Covid með það að markmiði að gera alltaf það sem börnunum er fyrir bestu. Það gerum við með því að koma samfélaginu í eðlilegt horf sem fyrst án takmarkana.