152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

áhrif takmarkana vegna Covid-19 á börn.

[11:39]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Þetta er búin að vera góð umræða hér, en spurningin er: Munum við læra af henni? Ég óttast að ekki verði miðað við það sem ég sagði áðan, að í lok þessa tímabils skyldu enn þá hafa verið börn í klukkutímabiðröð í brunagaddi eftir að komast inn í sýnatöku. En síðan höfum við líka börn sem voru í einangrun allt upp í tvo mánuði. Ég held að það hafi verið metið, tveir mánuðir. Hversu mörg börn voru svona lengi í einangrun? Hvaða áhrif hafði það á þau? Er verið að kortleggja það, rannsaka það? Ég held ekki. Ég óttast það helst að við munum gleyma þessu einhvern veginn. Ef við horfum á loftslagsmálin og börnin okkar þá erum við búin að búa til alveg gífurlegan ótta hjá unga fólkinu okkar sem veldur því hugarangri, þunglyndi, vanlíðan. Og ég óttast að við búum til nákvæmlega það sama í sambandi við Covid-19. Til þess að að koma í veg fyrir að það gerist þá verðum við að byrja á því að kortleggja hvað fór úrskeiðis og hvað var rétt gert. Í menntakerfinu t.d., hvað er betra en að fara núna strax í samtal við kennara? Þeir ættu að geta kortlagt hvað var gert rétt og hvað vantaði. Það á að kalla að borðinu núna alla þá sem hafa komið að velferð barna og láta þá setjast niður og ræða málin. Byrjum strax vinnuna vegna þess að við skulum alveg átta okkur á því að þetta er ekki síðasta veiran sem kemur. Þetta er ekki í síðasta skipti sem við lendum í svona kringumstæðum. Spurningin er: Erum við tilbúin fyrir framtíðina?