152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

áhrif takmarkana vegna Covid-19 á börn.

[11:41]
Horfa

Eva Dögg Davíðsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Geðheilsan verður til í æsku, um helmingur geðraskana kemur fram fyrir 15 ára aldur. Það er því ljóst að langvarandi skaði sem þær geta valdið á virkni og lífsgæði einstaklingsins mótast að miklu leyti við upphaf ævinnar. Áhrif faraldursins á geðheilsu barna og ungmenna til skemmri og lengri tíma er áskorun sem við höfum að mörgu leyti verið búin undir frá upphafi. Snemma var það áhersla ríkisstjórnarinnar að reyna að hlífa börnunum með því að halda skóla-, íþrótta- og tómstundastarfi sem eðlilegustu, líkt og hæstv. ráðherra nefndi hér á undan. Eins og hefur verið nefnt hafa rannsóknir bent til þess að geðheilsa og vellíðan barna og ungmenna verði mörkuð af áhrifum heimsfaraldurs til margra ára. Það ætti því að vera okkur öllum ljóst að óvissan, einangrunin og í mörgum tilvikum kvíðinn og hræðslan sem hefur fylgt yngstu kynslóðinni í gegnum faraldurinn hverfur ekki yfir nótt þegar öllum sóttvarnatakmörkunum verður aflétt.

Frú forseti. Ég geri ekki lítið úr því sem hefur verið nefnt um mikilvægi þess að sóttvarnatakmörkunum, sér í lagi þeim sem snerta börn og ungmenni, verði aflétt eins fljótt og mögulegt er. Ég biðla eingöngu til þingheims að við setjum hlutina líka í stærra samhengi, að við byrjum að byggja upp þær stoðir sem mun þurfa til að grípa þau börn sem glíma við andlegar og félagslegar áskoranir eftir faraldurinn. Hér vil ég sérstaklega nefna skólakerfi sem er jú sá vettvangur þar sem öll börn eru samankomin á degi hverjum. Á leið úr faraldrinum þurfum við að efla skólana í að stuðla að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu nemenda. Ég vona að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra beiti sér fyrir því að endurreisnin eftir faraldurinn feli í sér ríkari áherslur á að efla enn frekar geðrækt og geðheilbrigðisþjónustu innan skólakerfisins.