áhrif takmarkana vegna Covid-19 á börn.
Frú forseti. Í umræðum um störf þingsins fyrir nokkrum vikum gerði ég aðgerðaleysi stjórnvalda í þágu barna sem verða fyrir heimilisofbeldi eða verða vitni að því að umtalsefni mínu. Ofbeldi gegn börnum er sannarlega gríðarlega alvarlegt mál en það er ekki síður alvarlegt og hefur alvarlegar og varanlegar afleiðingar fyrir börn að verða vitni að ofbeldi, ekki síst þegar ofbeldi er beitt af hálfu einhvers eða gegn einhverjum sem barnið hefur lært að líta á sem verndara sinn í lífinu. Það er skelfilegt fyrir barn að horfa upp á verndara sinn beita ofbeldi eða horfa upp á manneskju sem barnið á sem stoð sína og styttu í lífinu verða fyrir ofbeldi, niðurlægða og gerða varnarlausa.
Fólk er líklegra til að beita ofbeldi þegar það er undir álagi. Sveiflur og óstöðugleiki í daglegu lífi, langvarandi einangrun og aðskilnaður frá samfélaginu og í ofanálag mikil óvissa um það hvað framtíðin ber í skauti sér veldur einstaklingum gríðarlegu álagi. Það þurfti því engan Nostradamus til að sjá fyrir að ofbeldi inni á heimilum myndi aukast við þær aðstæður sem hér voru skapaðar vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Jafnvel áður en heimsfaraldurinn skall á og stjórnvöld gripu til íþyngjandi samkomutakmarkana og annarra inngripa í daglegt líf fólks var kerfið okkar og samfélagið allt illa í stakk búið til að taka á heimilisofbeldi. Átti þetta jafnvel við um beina þolendur ofbeldis, einkum konur og börn sem urðu fyrir beinu ofbeldi af hálfu einhvers nákomins. Enn færri úrræði voru og eru enn til fyrir þau börn sem verða vitni að ofbeldi sem er þó er ekki síður skaðlegt heilsu þeirra, velferð og framtíð.
Ég vil því skora á hæstv. ríkisstjórn að leita allra leiða til að tryggja að börn sem búa við ofbeldi fái þá aðstoð og þann stuðning sem þau þurfa og að finna leiðir til þess að styðja verndandi foreldra þessa lands svo ofbeldinu megi linna.