áhrif takmarkana vegna Covid-19 á börn.
Frú forseti. Ég vil þakka málshefjanda, hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur, kærlega fyrir að vekja máls á þessu og efna til þessarar umræðu með hæstv. barnamálaráðherra. Þetta hefur verið fín umræða, gott að hlusta á þetta og meðtaka. Ég ætla kannski aðeins, eins og fleiri þingmenn hafa reyndar gert, að tala um framhaldsskólanemendurna, unglingana. Af því að við horfum oft mikið á nám þeirra þá velti ég fyrir mér áhrifunum af þessum takmörkunum á félagslíf og samskipti, hver þau í raun og veru eru. Við þurfum ekkert að spóla rosalega djúpt í hugskotið okkar til að muna það hvað skólaárin á þessum tíma voru skemmtileg, ekki bara út af námi og námsframvindu heldur bara þessum mikla þroska og félagsfærni sem við tókum inn með því að uppgötva lífið á nýjan hátt með skólasystkinum okkar, mynda ný tengsl, vinna í félagslífi, taka þátt í ræðumennsku, spurningakeppnum eða hvað þetta er. Þetta er algerlega ómetanlegur tími. Sá partur af þessum árum er ekki síður ómetanlegur en námið sjálft.
Vandinn við þetta mál allt saman er sá að afleiðingar Covid sem sjúkdóms blasa við nokkuð skýrt. Afleiddar afleiðingar getum við sagt, takmarkanir og afleiðingar af takmörkunum, blasa ekki við okkur með jafn skýrum hætti og koma jafnvel ekki í ljós fyrr en mörgum árum síðar. Ég ætla að leyfa mér að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji nú á þessari stundu að það geti verið að við séum að vega og meta þessa hagsmuni með röngum hætti núna þegar afleiðingarnar af sjúkdómnum sjálfum eru ekki svona alvarlegar eins og þær voru fyrst í faraldrinum. Ég velti líka fyrir mér: Hefðu stjórnvöld getað gengið lengra í að eiga einhvers konar samráð og samtal við þá hópa sem undir voru, þurftu að þola skerðingar, ekki bara á námi (Forseti hringir.) heldur á félagslífi og bara eðlilegum, uppbyggilegum samskiptum, þroskandi samskiptum við jafnaldra?