152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

áhrif takmarkana vegna Covid-19 á börn.

[11:48]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Mig langar hér í seinni ræðu minni við þessa umræðu að koma aðeins inn á bólusetningar barna, sem voru hér töluvert til umræðu fyrir nokkrum vikum síðan og mikil áhersla lögð á að keyra þær af stað og innleiða þá stefnu. Það kom nokkuð á óvart að hæstv. heilbrigðisráðherra sagði á sínum tíma á opnum fundi velferðarnefndar að það væri ekki sérstakt áherslumál hjá honum að innleiða þær bólusetningar. Það minnir mig að hafi verið á fimmtudegi en hafist var handa við bólusetningar barna á mánudegi. Þannig að einhvern veginn hélt þetta áfram á sjálfstýringu.

En mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hver afstaða hans sé til þess að hér hafi verið þrýst jafnmikið á og raunin er hvað bólusetningar barna varðar, til að verja eldri hópa. Það liggur algerlega fyrir í umræðunni að markmiðið með bólusetningu fimm ára barna var að verja eldri hópa, aðra hópa en þar voru bólusettir. Mig langar til að spyrja hæstv. barnamálaráðherra hvernig þetta spilar saman við það sem segir í 2. mgr. 1. gr. barnalaga, sem hljóðar svo, með leyfi forseta: „Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess.“

Þessi grein barnalaganna virðist ekki gefa neitt svigrúm til þess að framkvæma aðgerð eins og þá sem þarna var gerð til að verja aðra hópa. Mig langar að spyrja hæstv. barnamálaráðherra hvernig þessi ákvörðun var rökstudd við ríkisstjórnarborðið í ljósi þess að málaflokkur velferðar barna heyrir undir hæstv. ráðherra.