áhrif takmarkana vegna Covid-19 á börn.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka öllum þeim sem tekið hafa þátt í þessari góðu og þörfu umræðu, hæstv. barnamálaráðherra og þeim hv. þingmönnum sem tóku þátt. Ég staldraði aðeins við orð hæstv. ráðherra um að allt hafi verið gert til að gæta að hagsmunum barna og meðalhófi. Þá dettur mér fyrst í hug víðtæk sóttkví barna allan þennan tíma. Aðgerðir gagnvart börnum hafa sannarlega varað lengur og verið meiri en við héldum en sömuleiðis mun umfangsmeiri í samanburði við nágrannalöndin, þrátt fyrir að ítrekað hafi verið bent á það. Það er miður að á tveimur árum hafi ekki verið horft á áhrif ítrekaðrar sýnatöku á börn og þau metin. Þetta er eitt af því sem er okkur foreldrum ungra barna mjög ofarlega í huga og ég hvet til þess að þetta verði skoðað sérstaklega. Það er jákvætt að heyra af áformum hæstv. ráðherra um endurreisnaráætlun sem snýr sérstaklega að börnum. Rétt eins og við urðum vör við það að hæstv. barnamálaráðherra stóð fastur fyrir þegar þrýst var á um lokun skóla er ég viss um að hann muni beita sér fyrir því að leggja sérstaka áherslu á börn í eftirleiknum þannig að við munum í það minnsta draga lærdóm af því sem miður fór.
Virðulegur forseti. Þegar upp verður staðið mun mesti skaðinn af Covid fyrir börn hafa verið vegna aðgerðanna sem eru til umræðu hér í dag. Það er skylda okkar sem samfélags að vernda börnin okkar fyrir því sem ógnar lífi þeirra og heilsu. Þar er Covid-19 ekki ofarlega á lista. Ég er því hrædd um að við höfum brugðist þeim við forgangsröðun okkar á þessum erfiðu tímum, að við þurfum að horfast í augu við það að hér var höggvið þar sem hlífa skyldi, að þegar fram líða stundir verði erfitt að útskýra fyrir kórónubörnunum þær ákvarðanir sem dæmdu fjölda þeirra til ítrekaðar sóttkvíar, einangrunar og inniveru til að vernda aðra en þau sjálf, meira að segja eftir að samfélagið var allt svo bólusett að alvarleg veikindi vegna smita voru orðin fátíð.
Ég tek að lokum undir vonir hæstv. barnamálaráðherra um að þetta tímabil sé nú loksins á enda.