152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

áhrif takmarkana vegna Covid-19 á börn.

[11:52]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu og tek undir með þeim sem hér hafa talað og mér hefur þótt hún góð. Það er þannig að þegar við horfum á þennan tíma, af því það var látið í það skína hér að ekki hefði verið ráðist í neinar aðgerðir á tímabilinu og ég fór sérstaklega yfir það í máli mínu — af því að spurt var sérstaklega að því hvort fram hefði farið mat á hagsmunum barna í gegnum þetta tímabil — að það hefur verið ráðist í mjög fjölþættar aðgerðir. Í hverri einustu aðgerðaáætlun eða beiðni sem hafa komið inn í þingið hafa verið félagslegar aðgerðir og þær hafa oft snúið að börnum. Ríkið steig í fyrsta skipti inn í stuðning við tómstundaþátttöku barna af tekjulægri heimilum. Við fórum í sérstakt geðheilbrigðisframlag, 600 milljónir, sem samþykkt var í fjárauka síðasta vor og var sérstaklega farið í að styðja við lágþröskuldaúrræði ýmiss konar. Það var farið í fjölþættar félagslegar aðgerðir, sérstaklega fyrir fötluð börn, í sumarstarf fatlaðra barna. Það var sett fjármagn í tómstundir barna í viðkvæmri stöðu einmitt vegna heimsfaraldursins.

Af því að menn voru að velta fyrir sér barnaverndarmálunum þá fjölgaði tilkynningum til barnaverndar á Íslandi. Það var m.a. vegna þess að við fórum í sérstakt átak til að hvetja til þess að tilkynningarnar yrðu auðveldaðar með samstarfi dómsmálaráðuneytis og félagsmálaráðuneytis. Í mörgum þeirra landa sem við berum okkur saman við, þar sem voru meiri lokanir, voru færri tilkynningar til barnaverndar. Við höfum þannig í einhverjum tilfellum náð að grípa þessi mál og m.a. stutt við Barnahús fjárhagslega til að geta tekið á þeim málum. En stærsta málið er að við höfum náð að miklu leyti að halda eðlilegri rútínu gangandi, halda skólum opnum, tómstundastarfi gangandi meira en gengur og gerist með mörg nágrannalönd okkar.

Um leið segi ég, og tek undir með þeim sem hér hafa talað, að þetta hefur mikil áhrif á börn og þess vegna þurfum við að halda áfram á sama grunni og við höfum gert í þessum faraldri en horfa til þess hvernig við förum inn í endurreisnina með málefni barna og ungs fólks að leiðarljósi. Þar munum við taka allar þær ábendingar sem koma fram í þessum sal við þessa umræðu inn í þá vinnu. Ég vil þakka fyrir umræðuna. Hún er mikilvæg (Forseti hringir.) og ég vonast til þess að geta átt gott samstarf við þingið um þessi mál.