152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

dýralyf.

149. mál
[12:01]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ég vil koma hingað upp og þakka hv. velferðarnefnd fyrir góða vinnu. Það kom fram í 2. umr. að tíminn hefði verið knappari en nefndir kjósa almennt. Það er því augljóst að hér hefur verið unnin mjög góð vinna á knappari tíma en við oft æskjum og fyrir það vil ég þakka hv. velferðarnefnd. Þetta frumvarp lætur kannski ekki mikið yfir sér. Hluti af því er innleiðing og verið er að aðskilja dýralyf frá mannalyfjum. Þetta snýr að velferð dýra og um leið heilnæmi matvæla. Hér er líka verið að taka mikilvæg skref í átt að því að efla okkur gegn sýklalyfjaónæmi.