152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:10]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Hér er ég með skýrslu um afléttingaráætlun stjórnvalda. Sú ákvörðun var kynnt 28. janúar síðastliðinn. Þegar ákveðið var að ráðast í afléttingar voru liðnar u.þ.b. tvær vikur frá hertum takmörkunum. Spár sem lágu fyrir á þeim tíma um fjölgun inniliggjandi sjúklinga höfðu ekki gengið eftir þótt smitfjöldi hefði verið í samræmi við spár eða ívið meiri en spár sögðu til um, þegar hert var á aðgerðum 14. janúar. Þá höfðu verið á bilinu 40–45 sjúklingar inniliggjandi með Covid á Landspítala og fóru þegar mest lét í 47, ef ég man rétt, og hafði fjölgað hratt. En eftir þetta fór þeim hægt fækkandi og voru 35 þann 28. janúar þegar við tilkynnum þessa áætlun. Ákvörðun um tilslakanir sem tóku gildi 29. janúar síðastliðinn byggði á minnisblaði og áhættumati sóttvarnalæknis, dagsettu þann 26. janúar. Þar kom fram að fjöldi smita hafði verið nokkuð stöðugur með um 1.300 greind smit daglega, það er þetta rúllandi sjö daga meðaltal, en höfðu tvo daga þar á undan verið komin í 1.600. Alvarlegum veikindum hafði fækkað blessunarlega, en hins vegar hefði orðið fjölgun á vægum Covid-sýkingum hjá sjúklingum og innlögðum með önnur vandamál. Áskorun heilbrigðiskerfisins fælist í því að halda starfsemi gangandi með töluverðan fjölda smitaðra sjúklinga inniliggjandi á spítölum en ekki marga alvarlega veika og á sama tíma með þó nokkurn fjölda starfsmanna frá vinnu, umfram það sem við horfum til í venjulegu árferði, vegna Covid-19. Á þessum tíma voru um 200 starfsmenn Landspítalans í einangrun. Svipuð áskorun blasti við öðrum heilbrigðisstofnunum og annarri starfsemi víða í samfélaginu og ég dreg fram hér sérstaklega stofnunum félagsþjónustu. Gert var ráð fyrir að með afléttingum mætti búast við að samfélagssmitum myndi fjölga tímabundið sem gæti bæði aukið þann fjölda sem veiktist alvarlega, vegna þess að útbreiðslan er það mikil þó að hlutföll innlagna séu miklu lægri, og að neyðarástand gæti skapast á mörgum vinnustöðum sem krefðist sértækra úrræða og fyrirtæki þyrftu að vera undir það búin að starfa í einhvern tíma með skert vinnuafl. Af þessum sökum var það mat sóttvarnalæknis að stjórnvöld þyrfti að haga afléttingum innan skynsamlegra marka svo útbreiðsla kórónuveirunnar færi ekki úr böndunum með tilheyrandi fjölgun í veikindum í samfélaginu og afleiðingum þess, alvarlegum veikindum og röskun á ýmiss konar atvinnustarfsemi í landinu.

Að meginefni var tillögum sóttvarnalæknis fylgt með þeim frávikum að ákveðið var að ný reglugerð tæki gildi á miðnætti þann dag sem hún var tilkynnt en ekki beðið með að gildandi reglugerð rynni sitt skeið. Þá var opnunartími veitingastaða lengdur um tvær klukkustundir í stað einnar og hámarksfjöldi í verslunum var ákveðinn 500 og það var gert til samræmis við fjölda á viðburðum. Gildistími reglugerðarinnar var ákveðinn þrjár vikur, til 24. febrúar, en ákveðið að endurmeta stöðuna reglubundið, ég ítreka það. Þegar við segjum endurmeta stöðuna er það gert á hverjum degi. Þetta hefur svolítið snúist í það núna að fara í skynsamlegar afléttingar fremur en að vera að horfa til takmarkana. Þannig hefur þetta svolítið snúist við, þegar við horfum á sóttvarnalögin og mikilvægi þess að horfa til meðalhófs og jafnræðis. Í gær til að mynda féllu úr gildi nándarreglur á sitjandi viðburðum. Það er auðvitað gert í fullu samráði við sóttvarnayfirvöld. Ég á von á því að við getum, til þess að mæta þessari röskun sem á sér stað í starfsemi vegna þess að einkennin koma mjög missterkt fram og vara mislengi, stytt einangrun úr sjö dögum í fimm daga. Það mun liðka til, ekkert ósvipað og þegar við léttum á sóttkvínni í vikunni sem við tilkynntum um afléttingaráætlun.

Í minnisblaði sóttvarnalæknis frá 26. janúar eru drög að þessari afléttingaráætlun og þar er gert ráð fyrir næsta skrefi 24. febrúar, en eins og ég segi þá gerum við það fyrr. Það er ýmislegt sem er að vinna með okkur og bendir til að það verði óhætt á grundvelli sóttvarna. Um miðjan mars verður full aflétting til skoðunar og ég vil meina að á hverjum degi verði þetta samtal að eiga sér stað, bæði við heilbrigðisstofnanir og við aðra starfsemi. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur gott yfirlit yfir það hvar hættumörkin eru um röskun og jafnvel algjört stopp, þ.e. hversu margir geta verið frá til að hægt sé að halda uppi starfsemi. Þetta samtal er stöðugt og stöðugt er verið að meta stöðuna. Þannig mun ríkisstjórnin hafa áætlunina til hliðsjónar en meta stöðuna jöfnum höndum og aflétta meira og hraðar ef tilefni er til og á grundvelli sóttvarna. Það hefur verið gert, eins og ég hef farið hér yfir, í nokkrum tilvikum og í samræmi við þetta stöðuga mat kölluðum við jafnframt eftir öðru áhættumati, formlegu áhættumati frá sóttvarnalækni og það barst heilbrigðisráðherra í gær. Þar er þessi heilsufarslega ógn dregin fram sem nú stafar af Covid-19. Hún er tvíþætt, annars vegar alvarleg veikindi einstaklinga sem þurfa á þjónustu heilbrigðiskerfisins að halda vegna mikillar útbreiðslu smita og vegna fjarvista starfsmanna ýmissa lykilstofnana vegna veikinda af völdum Covid, bæði í heilbrigðisþjónustu sem og öðrum mikilvægum innviðum.