152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:18]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Þórdís Hulda Tómasdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunarsviðs Eirar, Skjóls og Hamra, sagði í viðtali á dögunum, sem birt er á vefnum vísir.is, að erfiðast væri fyrir starfsemina að missa starfsmenn í einangrun og sóttkví. Íbúar fái nokkuð skerta þjónustu vegna þess að heimilin séu undirmönnuð nánast á hverri vakt, starfsmenn séu í sóttkví eða einangrun eða börn þeirra. Það skapi mikið álag á öllum vígstöðvum, við umönnun, í rekstrardeild og viðhaldi. Hún sagði að þessi staða væri mjög erfið. Líkt og fleiri vinnustaðir hafa hjúkrunarheimili nýtt nýja heimild í reglum um sóttkví og boðið þríbólusettum starfsmönnum að mæta til vinnu á meðan þeir eru í sóttkví. Þeir starfsmenn þurfa að nota andlitsgrímu öllum stundum, eru með sér salernis- og kaffiaðstöðu og draga úr umgengni við aðra eins og mögulegt er. Jafnvel þótt sú staða sé betri en að starfsfólkið sé í sóttkví þá eykur það álagið á starfsmennina. Fleiri hafa lýst áhyggjum sínum yfir að starfsemi hjúkrunarheimila og önnur umönnunarstarfsemi, svo sem við fatlað fólk, skerðist verulega vegna þess að starfsmenn smitast af Covid og geta ekki mætt í vinnu.

Ég vil því spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra: Er þessi staða vöktuð nægilega? Og ef hættuleg staða kemur upp, er þá unnið eftir ákveðnu skipulagi þannig að mögulegt sé að halda uppi þjónustu við fólk sem ekki getur lifað án hennar eða þarf að búa við vanlíðan ef þjónustuna skortir tímabundið? Hæstv. ráðherra nefndi að kerfið og almannavarnir hefðu áhyggjur af þessari stöðu, en ég vil spyrja: Er þessi staða vöktuð nægilega og getum við treyst því að gripið verði til ráðstafana ef hætta skapast?