afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur fyrir að koma inn á þennan þátt. Þetta er kjarninn í því áhættumati sem sóttvarnalæknir leggur til við heilbrigðisráðherra, hvar samandregið segir að mikil útbreiðsla smita verði að teljast ógn við almannaheill hér á landi, einkum vegna skertrar starfsemi ýmissa fyrirtækja, og því teljum við mikilvægt að allar afléttingar takmarkana verði gerðar með nokkrum öruggum skrefum og á grundvelli sóttvarna og þess að við ráðum við stöðuna.
Þessi viðureign hefur aðeins breyst með þessu veikara en mjög smitandi afbrigði. Það eru því að koma upp, eins hv. þingmaður kom inn á og vísaði í forstöðumenn hjúkrunarheimila, smit á hjúkrunarheimilum. Þar er jafnframt meira um veikindi starfsfólks heldur en í venjulegu árferði. Þetta gildir um mjög margvíslega starfsemi og þetta er sérstaklega viðkvæmt á heilbrigðisstofnunum. Og já, þetta er vaktað alveg sérstaklega vel og daglega. Landlæknir gefur heilbrigðisráðherra skýrslu og stöðumat um það hver staðan er á hverri stofnun fyrir sig og er í góðu sambandi við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu um stöðuna á hjúkrunarheimilum. Það kom mjög glögglega í ljós í samtölum við forstöðumenn hjúkrunarheimilanna að staðan er mjög viðkvæm. Hún er viðráðanleg, hún er víðast ekki á rauðu, eins og sagt er, en við getum sagt á gulu, dökkgulu sums staðar. Mönnunin er tæp vegna þess að óvenjumargir eru frá og smit að koma upp sem þyngja aðeins verkefnin. En staðan er viðráðanleg. Ég held að við séum þess vegna að gera þetta afar skynsamlega og þetta er okkar (Forseti hringir.) stærsta verkefni akkúrat núna.