afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Nýr forstjóri Landspítalans segir að starfsfólk hafi mátt búa við mikið álag í faraldrinum og margir séu orðnir langþreyttir og þurfi hvíld. Álag á heilbrigðisstarfsfólk í faraldrinum, sem staðið hefur yfir nánast samfleytt í tvö ár, hefur verið rætt hér í þessum sal og kallað eftir viðbrögðum stjórnvalda. Síðast þegar sú sem hér stendur átti samtal við hæstv. ráðherra um þetta svaraði hæstv. ráðherra því til að mönnunarvandinn yrði ekki leystur á stuttum tíma heldur væri þetta langtímaverkefni. En, frú forseti, við stöndum nákvæmlega frammi fyrir því núna að álagið er allt of mikið á starfsfólkið okkar. Kulnun í starfi vegna álags má ekki verða faraldur meðal heilbrigðisstarfsfólks. Þá verður mönnunarvandinn, sem var þekktur fyrir Covid, enn alvarlegri. Skurðaðgerðum hefur verið seinkað vegna Covid og fyrirséð að álagið heldur áfram eftir að faraldurinn hefur gengið yfir á meðan unnið er á biðlistum og unnið á uppsöfnuðum vanda.
Ég vil biðja hæstv. heilbrigðisráðherra að segja hér hátt og skýrt til hvaða aðgerða hefur verið gripið nú þegar og hvaða aðgerðir séu í bígerð til að létta álagið á heilbrigðisstarfsfólki. Ég spyr einnig um hvernig standi til að umbuna starfsfólkinu sérstaklega fyrir að víkja öllu til hliðar í lífi sínu til að standa vaktina fyrir okkur hin.