152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:34]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir þessar góðu spurningar. Mér fannst gott þegar hv. þingmaður endaði einmitt á þessari afléttingarviðleitni af því að þetta virkar svolítið þannig. Ég finn alveg pressuna hvern dag og mér finnst hún eðlileg. Við eigum við þær kringumstæður sem eru núna, og ég ítreka það enn og aftur, að fylgja áfram okkar helstu sérfræðingum og áhættumati og taka tillit til þess jöfnum höndum þannig að við höfum tök á stöðunni. Það er svolítið verkefnið akkúrat núna.

Hv. þingmaður dregur hér fram skoðun WHO. Ég held að það skipti öllu máli þegar við erum tala um landamæri að auðvitað sé sem greiðust leið fyrir fólk að ferðast, að ekki sé verið að stoppa það hér og hvar og prófa. Við erum að fylla út ýmiss konar skýrslur og gögn og við verðum að passa að það verði ekki eitthvert fyrirkomulag sem bara heldur áfram. Það er mjög fín lína þegar við verðum komin þangað. Helstu rökin þegar við erum að fá 7–8% af heildarsmitum í gegnum landamærin hafa verið áhyggjur af nýjum afbrigðum. Við verðum þá helst fljót að átta okkur á því þegar þau koma að við verðum að skima í gegnum landamærin. Mér sýnist landamærahópurinn vera að vinna þetta í samræmi við almennar afléttingar, einmitt við það sem er að gerast í öðrum löndum, og gæta samræmis. Ég veit að maður á ekki að vera að skapa einhverjar væntingar. Ég veit að verið er að horfa til ferðaþjónustunnar. Við erum á lágönn. Ferðaþjónustan getur sagt í sínum bókunum: Hér verður öllu aflétt samkvæmt áætlunum 14. mars, fyrr. Mér finnst það ákveðinn fyrirsjáanleiki. Ég myndi ætla að þetta yrði í samræmi við aðrar afléttingar og fyrr en seinna.