152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:36]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir sína greinargóðu skýrslu og yfirferð og spurningar og svör sem hér hafa komið fram. Það fylgir því gríðarleg ábyrgð að vera heilbrigðisráðherra á hættutímum, faraldurstímum, og hér hafa flestir þurft að færa fórnir og sumir mjög miklar fórnir, jafnvel fórnir á borð við það að missa fyrirtæki, missa fjölskyldu, missa líf og heilsu. Ábyrgðin er hengd einkum og sér í lagi um hálsinn á einum manni og ég öfunda hann ekki beinlínis af því hlutskipti. Ég verð að lýsa ánægju með það hvernig nýr heilbrigðisráðherra hefur tekið á þessu, af æðruleysi og auðmýkt og reynt að gera sitt besta eins og fólk jafnan gerir hér í þessu húsi. En þetta er allt fordæmalaust og það hefur enginn reynslu af því að glíma við svona. Við höfum tveggja ára reynslu. Ég er sérstaklega þakklátur fyrir að það eru engir fordómar gagnvart einkareknum fyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu hér í þessu húsi, alla vega ekki í heilbrigðisráðuneytinu mér vitanlega. Ég vil nefna sérstaklega fyrirtækið deCODE sem ég held að hafi skipt miklum sköpum hér á sínum tíma við það að innleiða hátækni við greiningu, rakningu og þess háttar. Ef svo illa skyldi fara að þetta væri ekki síðasta afbrigðið, þetta milda ómíkron-afbrigði, sem við erum að glíma við núna, væri nokkuð því til fyrirstöðu að leita til deCODE á ný eða sambærilegra fyrirtækja? Nú veit ég að það er ekki lengur að störfum við þetta þannig að ég spyr ráðherra að þessu.