152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:38]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni fyrir hans prýðilega innlegg og spurningar. Hv. þingmaður kom sérstaklega vel inn á stóru myndina í þessu, allar þær fórnir sem við höfum sem samfélag þurft að færa í gegnum þennan faraldur. Við erum auðvitað ekki öll alltaf sammála um það hvað best sé að gera og hann er vandrataður meðalvegurinn á milli þess að halda í frelsið og að fara varlega og gæta að okkar veikustu samþegnum, sem eru viðkvæmari fyrir þessu en aðrir. Það getur verið býsna snúið. Ég vil meina að við höfum búið svo vel, þrátt fyrir afar lítið kerfi, almannavarnakerfi og embætti, að hafa haft sérfræðinga með okkur í þessu allan tímann sem hafa ráðið okkur heilt. Við höfum fjölmarga vísa sem staðfesta það að við höfum gert þetta býsna vel vegna þessara sérfræðinga okkar og smitsjúkdómasérfræðinga. Í þessu litla kerfi hefur styrkurinn í samvinnunni komið svo glögglega fram. Þetta hefur kannski speglast í því að við erum ekki hér að velta því fyrir okkur hvernig rétta formið er á hverri rekstrareiningu sem hefur þekkingu og burði og færni til. Það er rétt að Íslensk erfðagreining hefur með óeigingjörnum hætti komið okkur til aðstoðar þegar reynt hefur á sýnatökugetuna. (Forseti hringir.). Eins og staðan er núna að þróast þá þurfum við ekki þeirra aðstoð akkúrat núna (Forseti hringir.) en ég veit að þeir eru alltaf boðnir og búnir til að hlaupa undir bagga.