152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:50]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Herra forseti. Ég þakka ráðherra kærlega fyrir heiðarleg svör. Það er einmitt reynsla mín af samstarfi við hæstv. ráðherra hvað varðar samstarf í t.d. fjárlaganefnd, að fá þetta bara hreint út. Þetta er byggt að mjög miklu leyti á tilfinningu fólks sem hefur verið að sinna viðbrögðum okkar í faraldrinum hingað til. Ég geri ekki lítið úr þeirri reynslu sem fólk hefur eftir að hafa gengið í gegnum þetta á hverjum degi allan sólarhringinn nokkurn veginn í næstum tvö ár, hversu mikils virði slík reynsla er og hversu nauðsynlegt er að við hlustum og treystum slíkri reynslu.

Hitt er síðan það sem ég benti á og hæstv. ráðherra segir að það sé í rauninni ekki til skjal sem er uppfært reglulega og við getum gengið að um hvað tekur við að loknum faraldrinum. Hvaða afleiðingar erum við að fara að kljást við t.d. vegna álags í heilbrigðiskerfinu á næstu árum vegna hættu á því að fólk sé að brenna út? Hvert er samhengi þess? Hvert væri samhengi þess að reyna að létta enn meira undir núna strax frekar en að þrauka í núverandi ástandi í sex mánuði í viðbót eða vonandi styttra eða hvernig sem það er? Það eru þannig áherslur sem maður myndi vilja sjá, smá hugsun fram í tímann. Þetta er langtímaverkefni og þá þurfum við alltaf að hafa til hliðsjónar langtímaáætlanir. Það er eitthvað sem við Píratar höfum kallað eftir allan faraldurinn en hæstv. fjármálaráðherra hefur rétt minnst á í lok faraldursins, sem er kannski ekki alveg rétti tíminn.