152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:53]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni þetta innlegg hérna. Ég held að hv. þingmaður sé einmitt að draga fram það sem við ættum að gera. Við vitum að það hafa verið gerðar skýrslur í gegnum faraldurinn sem við höfum fengið í nefndum, í velferðarnefnd um vöktun hópa fyrir geðheilbrigði, fyrir félagslegri þjónustu og aðstoð við ýmsa hópa, og síðan í fjárlaganefnd um fjárhagslegar afleiðingar og mat á því hvaða aðgerðir hafa heppnast, og reynt að setja í samhengi við ástandið í hagkerfinu, atvinnuleysið. Gögnin eru til á víð og dreif. Vöktunin er til. Embætti landlæknis hefur tekið mikið efni saman, það er vöktunarhópur í félagsmálaráðuneytinu, það er vöktunarhópur í heilbrigðisráðuneytinu. Ég held að það sem hv. þingmaður er raunverulega að draga hérna fram sé það sem við ættum að fara í, að taka þetta allt saman.

Ég heyri svo oft og víða þegar upp koma krísuaðstæður að þá fara margir að kalla eftir planinu af því að það er óþægilegt þegar við erum í mikilli óvissu og þá eru viðbrögðin: Hvar er planið? Þegar kemur að ríkisfjármálunum þá höfum við haldið áætlun og við höfum haldið okkur við það þjónustustig sem er sett fram í ríkisfjármálum. En svo erum við í svona neyðarviðbragði þegar kemur að sóttvörnum sem hafa ofsaleg áhrif á þessa mynd. Ég held að við þurfum einhvern veginn að átta okkur á því (Forseti hringir.) upp úr þessu hvernig við getum hagað málum þegar kemur að langtímasýn í sóttvörnum til að kallast á við planið (Forseti hringir.) sem raunverulega er til staðar í ríkisfjármálaáætlun, ríkisfjármálastefnu og því umhverfi í lögum um opinber fjármál.