afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Á Evrópuráðsþinginu fór í liðinni viku fram umræða um sóknaraðgerðir í baráttunni við heimsfaraldur kórónuveiru, hvernig hefði til tekist og hvernig bæri að koma okkur með sem farsælustum hætti undan óværunni. Margvísleg sjónarmið komu fram og nokkuð góð samstaða var um endanlega ályktun þingsins. Í henni kom fram að heimsfaraldur kórónuveiru væri meira en bara heilsufarsmál því að áhrifanna gætti einnig á efnahagslíf og samfélag með aukinni fátækt og ójöfnuði. Þá hvatti þingið aðildarríki til að innleiða lýðheilsuaðgerðir og félagslegar aðgerðir til að hvetja til bólusetningar, grímunotkunar og virðingar á nándartakmörkunum. Þar hefur ekki mörgum vegnað eins vel og okkur hingað til.
Það er forvitnilegt að hlusta á þessa umræðu og rökræðu og átta sig á því hvað okkur hefur raunverulega vegnað vel hér. Við erum í þessari stöðu nú að geta stigið farsæl og varfærin skref í afléttingu takmarkana vegna þess hve samstaða landsmanna hefur í raun verið mikil hingað til og þannig bjargað mörgum mannslífum, það hefur verið gagnkvæm virðing fyrir lífi og heilsu og traust á almenna heilbrigðiskerfinu okkar og bólusetningum.
Þá kem ég að spurningu til ráðherra: Er ráðherra ekki sammála mér um að vel hafi til tekist og að mikilvægt sé að byggja áfram á þeim góða grunni í breyttum aðstæðum og hvort enn sé ekki ástæða til að hvetja enn fleiri til bólusetninga og bregðast við falsfréttum og áróðri gegn bólusetningum og halda áfram að byggja upp það traust sem þarf til án þess að fólk sé sérstaklega skyldað til bólusetninga?
Og önnur spurning. Evrópuráðið mælti einnig í ályktun sinni með því að skylda þá sem starfa með fólki í viðkvæmum hópum í heilbrigðisþjónustu eða félagsþjónustu til að láta bólusetja sig ef þeir hyggjast halda því áfram. Hver er afstaða hæstv. ráðherra til slíkra ráðstafana?