afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bjarna Jónssyni fyrir innlegg hans hér. Hann hóf ræðu sína á því að vísa í Evrópuráðsþingið og já, það birtist manni alltaf í samtölum við þá sem eru að kljást við nákvæmlega það sama um allan heim, hversu vel okkur hefur raunverulega tekist í gegnum þennan faraldur. Það hefur í raun ekkert breyst þó að við fáum í meira mæli fréttir af því að verið sé að fara í fullar afléttingar. Þá eykst eftirvænting okkar eftir því sem við viljum öll, að taka til endurskoðunar þetta regluverk sem er nauðsynlegt en er auðvitað sett til að takmarka smit. Helsta vopnið er auðvitað sóttkví, einangrun og alls konar takmarkanir á hversu margir mega koma saman til að hindra útbreiðslu smita. Það regluverk er ekki nákvæmara en það er og fer svolítið eftir því hvar við erum, í bælingu eða temprun, á hvaða stað við erum hverju sinni. En ég er sammála hv. þingmanni í því, okkur hefur gengið mjög vel. Ég ætla að nefna samstöðuna sem hefur haldist í gegnum þetta í samfélaginu. Samstaðan kemur m.a. fram í því að þiggja þá þjónustu sem er valfrjáls en í boði, um bólusetningar. Og varðandi gildi bólusetninga þá er augljóst að hátt bólusetningarhlutfall hefur hjálpað. Útsjónarsemi Covid-göngudeildarinnar hefur hjálpað verulega til auk samstöðunnar. Ég myndi draga þetta þrennt fram.
Ég skal svara betur í seinna andsvari varðandi mína skoðun á þessu.